Eins og Miley Cyrus getur verið með dásamlega vel snyrtar og fallegar neglur virðist sem hún bregði stundum út af vananum.
Hún birti nýverið mynd á Instagram síðu sinni af naglavörum og sagðist hafa misst sig aðeins, eða: ,,went a little nail crazy…”
Þetta er ef til vill ekki frásögur færandi nema vegna þess sem á eftir kom. Þá póstaði vinkonan myndir af nöglunum sínum þar sem hún hafði verið að föndra og leika sér við að skreyta.
Deila má um það hversu mikið skreytingarnar eru fyrir augað. Miley er kannski ekki mesta pjattrófan? Myndir segja meira en þúsund orð!
Hulda Jónsdóttir Tölgyes er 28 ára og úr Reykjavík.
Hulda hefur lokið tveimur háskólaprófum í sálfræði og stefnir ótrauð á að læra enn meira innan þess sviðs á næstu árum.
Hún er jafnframt lærður naglafræðingur úr MOOD skólanum og einn af stofnendum poppkórsins Vocal Project.
Hulda er hundafrík sem naglalakkar stundum tíkina sína!