Þessar myndir af Miley voru teknar fyrir V tímaritið og hneyksluðu marga
Miley Cyrus og kærastinn Patrick Schwarzenegger segjast dugleg að taka upp kynlífið sitt. Það þarf þó enginn að svitna og halda að hér sé á ferðinni enn ein fréttin af kynlífsmyndböndum sem lekið hafa á netið, því parið segist alltaf eyða myndböndunum um leið og þau eru búin að horfa á það. Þetta sé einungis til gamans gert og fyrir þau að njóta.
Í frétt Mirror er vitnað í heimildarmann sem segir Miley hafa sagt að hún og Patrick væru dugleg í bæði myndböndunum og að taka nektarmyndir. Hún hafi gaman af alls kyns uppstillingum, til dæmis þar sem hún er með eitthvað nammi eins og sleikjó.
Annar heimildarmaður segir neista mikið á milli ungu skötuhjúanna. Sambandið hafi í rauninni bara byrjað sem kynlífssamband, en raunin sé sú að því betur sem þau kynnast, því hrifnari eru þau að verða að hvort öðru.
Patrick Schwarzenegger verður 22 ára á þessu ári og er elsta barn fyrrum hjónanna Arnold Schwarzenegger og Kennedydótturinnar Mariu Shriver. Hann er sagður hafa kolfallið fyrir Miley við fyrstu kynni, en Miley er ári eldri en hann. Patrick starfar sem fyrirsæta og leikari í Hollywood en Miley er sem kunnugt er, söngkona með meiru.
Allt síðasta ár hefur hún oftar en ekki verið að komast í sviðsljósið fyrir djarfa og jafnvel ósæmilega hegðun en parið er þó sagt afar hrifið og ánægt saman, þannig að hver veit nema Miley verði rólegri í ár en í fyrra?
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.