Miley Cyrus tekur upp á ýmsu þessa dagana en nýjasta útspilið var að fá sér hrikalega sætan gælugrís!
Miley birti fullt af myndum af litla grísnum sínum á Instagram fyrir nokkrum tímum en svo virðist sem hún sé að fara með hann í eitthvað skemmtilegt ferðalag með einkaþotunni sinni.
Eins og sjá má fær hann að vera puntaður og fínn líka en hún naglalakkaði hann með eldrauðu lakki. Hundurinn hennar Miley virðist ekki ósáttur við nýja félagann heldur. Þau eru voða krúttleg öll þrjú.
Grísir (eða svín) eru greindar skepnur sem auðvelt er að temja og eiga sem gæludýr en svona litlir gaurar hafa verið ræktaðir sérstaklega í Ástralíu og komust fyrst í “gæludýrasviðsljósið” upp úr 1980.
Litlu svínin eru kölluð miniature pigs, micro pigs eða teacup pigs. Paris Hilton sem er gríðarlegur dýravinur eignaðist svona gæludýr árið 2009 og upp úr því hafa vinsældirnar aukist enda Paris mikill trendsetter.
Miley virðist hinsvegar vera að byggja við ímynd sína sem bandarískur sveitalubbi með grísakaupunum því hún hefur líka sést á Instagram drekka moonshine, klæðast smekkbuxum og tala með sveitalubbahreim. Það mynd Paris líklegast aldrei gera.
Vonum að Miley gangi vel að ala grísinn sinn upp. Kannski verður hann bara villingagrís (eins og mamman).
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.