Söng, leikkonan og uppreisnarseggurinn Miley Cyrus óttast að brotist hafi verið inn á heimili hennar um helgina.
Unga konan vinnur núna með lögreglunni að málinu eftir að aðstoðarkona hennar tilkynnti að persónulegir munir Miley hefðu horfið af heimili hennar um síðustu helgi.
Samkvæmt TMZ var lögreglan kölluð til um miðnætti síðastliðið laugardagskvöld eftir að aðstoðarkona hennar kom heim til hennar og uppgötvaði að það vantaði hluti á heimilinu hennar.
Samkvæmt heimildum var ekkert sem benti til þess að brotist hefði verið inn á heimili Miley og er núna verið að skoða upptökur úr öryggismyndavélum við heimili hennar til að finna út úr því hvort eitthvað hafi verið fjarlægt af heimili hennar.
Mögulega er þetta eltihrellirinn sem hefur verið að stanglast utan í henni að undaförnu?
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.