Hin unga söng og leikkona Miley Cyrus virðist vera farin svo langt frá Disney ímynd sinni Hannah Montana að fólk veit ekki orðið hvað það á að halda um hana.
Miley á marga unga aðdáendur og á jafnvel eftir að eignast fleiri marga unga aðdáendur í náinni framtíð sem munu horfa á gamla þætti og endursýningar af þáttunum hennar “Hannah Montana” en síðan hún kom fram á VMA hátíðinni hefur hún hneykslað nánast í hverri viku.
Tónlistarmyndbandið við lag hennar “Wrecking Ball” sló öll met á Youtube og hefur ekkert myndband fengið jafnmikið áhorf á einum sólahring en þar kom nún nakin fram -BÓKSTAFLEGA! Hékk á járnkúlu í engu nema Dr.Martins skóm og með rauðan varalit.
Tungan hennar hefur líka verið umfjöllunarefni víða en Miley segir að hún kunni einfaldlega ekki að “pósa” þegar fólk tekur myndir af henni. Því bregði hún einfaldlega á það ráð að reka tunguna út úr sér (því það er ekki eins vandræðalegt og að brosa)!
Nýjasta útspil hennar eru hinsvegar nektarmyndir, já nektarmyndir! Mér finnst þetta persónulega ekki lengur list heldur hróp á hjálp, en við hverju veit ég ekki. Það sem mér finnst þó furðulegt í þessu öllu saman er að ljósmyndarinn og maðurinn á bakvið Wrecking Ball myndbandið er hinn eini sanni Terry Richardson sem er 48 ára gamall.
Hvar eru foreldrar Miley, umboðsmaðurinn hennar, vinir hennar og allir hinir, hvers vegna stöðvar enginn hegðun hennar eða segir henni að þessi athygli sé mjög neikvæð? Þetta er allvega kalt mat mitt, Miley er aðeins tvítug að aldri og á allan ferilinn eftir. Ekki veit ég hvernig ég myndi bregðast við eða útskýra myndirnar af Miley ef ég ætti litla dömu sem væri aðdáandi hennar en dæmi nú hver fyrir sig.
Hvað finnst þér um þetta? Er Miley bara rosalega sjúk í athygli eða býr eitthvað meira hér að baki?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig