Það er greinilegt að Ashton Kutcher og Mila Kunis vildu bíða með barneignir og trúlofun þar til að skilnaður Ashton og Demi væri gengin í gegn.
Parið var þó ekki lengi að hlutunum en þau trúlofuðu sig í síðasta mánuði og eiga einnig von á sínu fyrsta barni! Það er þvílík lukka og hamingja hjá þeim, ástfangin upp fyrir haus og hafa verið dugleg að ástina á körfuboltaleikjum þegar þau lenda í “kiss cam” uppi á áhorfendapöllunum.
Það er aðeins farið að sjást á Milu en hún hefur oftar en einu sinni verið kosin kynþokkafyllsta kona heims og svei mér þá ég held að hún eigi eftir að vera sjúklega krúttleg á meðgöngunni.
Parið hefur verið saman síðan 2011 en Demi Moore og Ashton stóðu í skilnaði þar til á síðasta ári. Demi heimtaði háar fjárhæðir frá Ashton og hann var ekki tilbúinn að gefa eftir þannig að samningaviðræður um peninga og annað slíkt stóðu í ansi langan tíma.
Vinir þeirra beggja segja að þau séu í skýjunum með trúlofunina og hlakka svo sannarlega til þess að verða foreldrar og geti ekki beðið eftir að sjá litla krílið.
Hvern hefði grunað að Ashton og Mila myndu enda sem par en þau léku saman í “That 70´s Show” sem var mjög vinsæll á sínum tíma.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig