Leikkonan Mila Kunis er í myndaþætti og viðtali í Allure tímaritinu þar sem hún neitar að tala um Ashton og fyrri sambönd sín.
Mila sem sagði í viðtalinu þegar hún var spurð út í samband sitt við Ashton:
“Ég vissi ekki að þetta viðtal væri um vini mína, ég hélt að það ætti að vera um mig! Ég er meira en viljug að tala um sjálfa mig en ekki vini mína, hverja ég hef deitað eða hvern ég er að deita!”
Mila er sem kunnugt er orðið að deita Ashton Kutcher og hún var með Home Alone leikaranum Macaulay Culkin í átta ár. Mila segir samt sem áður í viðtalinu að hún hafi verið einhleyp í fjögur ár og það hafi einfaldlega verið með bestu árum lífsins, hún naut þess í botn að vera frjáls og einhleyp og gerði það sem hún vildi.
Leikkonan segir að hún myndi alveg íhuga það að koma nakin fram í kvikmynd ef hún fengi draumahlutverkið í hendurnar.
Hún prófaði sig áfram og sýndi smá “sideboob” eða hliðarbrjóst í kvikmyndinni “Friends With Benefits” en Mila segir að það hafi verið meira en nóg. Hún vildi þó ekki sýna rassinn og segir “….þú færð annað en ekki bæði í einu frá mér”. Greinilega ekki rétta hlutverkið þar.
Mila er með sex kvikmyndir í vinnslu um þessar mundir og það er því óhætt að segja að það sé nóg að gera hjá henni þessa dagana.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig