Leikarahjónin hafa ákveðið að taka saman aftur eftir sex mánaða aðskilnað en þau eru hamingjusamari en nokkru sinni fyrr.
Michael og Catherine ákváðu að taka hlé frá hjónabandi sínu en þau hafa þurft að yfirstíga margar hindranir á þeim þrettán árum sem þau hafa verið gift. Þau hafa bæði sett upp giftingahringana sína á ný og nánir vinir þeirra segja að þau séu í skýjunum með þá ákvörðun að taka saman aftur.
Hjónin gengu í hús ásamt börum sínum að sníkja nammi á Hrekkjavökunni og að sögn Michael skemmtu þau sér konunglega saman. Hjónin eiga saman tvö börn, Dylan og Carys. Michael á einn son frá fyrra hjónabandi, Cameron, en hann situr í fangelsi fyrir fíkniefnasölu
Michael og Catherine hafa verið saman í þrettán ár en það þykir vera ansi langur tími í skemmtanabransanum.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig