Benetton tískurisinn hefur lengi verið kraftmikill í sínum auglýsingaherferðum og með því komið mikilvægum skilaboðum áleiðis.
Flestir kannast við The United Colours of Benetton herferðirnar þar sem unnið var gegn kynþáttahatri en í nýjasta útspilinu er unnið gegn öllu hatri – enda kallast herferðin UnHate.
Þar má sjá hina ýmsu leiðtoga heimsins kyssast innilega beint á munninn, sama hvort leiðtogarnir eru af sama kyni eða ekki.
Auðvitað hefur herferðin valdið talsverðum usla og þá er auðvitað hálfur sigurinn unninn hvað varðar Benetton. Allt umtal er jú gott þegar auglýsingar eru annars vegar.
Snilld!
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.