Vincent & Lorenzo eru franskir listamenn frá Lyon sem eru með sérstakan húmor og hafa afar gaman af að gera eftirmyndir af ljósmyndum annarra.
Svo gera þeir þó nokkuð grín að tískuheiminum, bloggfærslum og fólkinu á götunni. Það er engin sem sleppur en myndirnar þeirra eru flottar og oft ótrúlega líkar frummyndunum.
heimasíðan þeirrahttp://dqmw.fr/en
og þá má einnig finna á facebook
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.