Það er ekki oft sem fyrirtæki á Íslandi fagna 50 ára afmæli en það gerði Rakarastofan Herramenn þann 9. desember en rakarastofan hóf starfsemi sína að Neðstutröð 8 í Kópavogi fyrir jú hálfri öld og starfar þar enn.
Rakarastofan var stofnuð af Torfa Guðbjörnssyni og er nú rekin af syni hans Gauta og barnabarninu Andra, en Gauti er einn af rakarameisturunum sem lærði að raka með hníf (svona eins og í kúrekamyndunum) en sú list er að mér skylst ekki lengur kennd þegar konur og karlar læra hárgreiðslu í dag.
Kallinn minn fer oft í rakstur fyrir aðfangadag til þeirra Gauta og Andra og finnst honum mikil stemning í því að fara á alvöru rakarastofu þar sem er dekrað við hann eins og í kúrekamyndunum og þegar Gauti tekur upp hnífinn kitlar það karlmennskuna að láta dekra við sig á karlmannlegan hátt.
Hjá Herramönnum er hægt að kaupa endalaust úrval af snyrtivörum fyrir karlmenn, hægt er að kaupa sköfur og hnífa ásamt fleiri vörum og ef þú ert í vandræðum með gjöf handa kærastanum eða pabba gamla, þá er þessi staður málið en það er einnig hægt að gefa gjafabréf í raktur hjá Herramönnum.
Sigrún Þöll Þorsteinsdóttir (f.15 feb 1975 – d. 8 apríl 2014) bloggaði á Pjatt.is í rúmlega tvö ár.
Sigrún Þöll starfaði sem tölvunarfræðingur, var dellukona, tækjasjúk og fagurkeri af lífi og sál. Að eigin sögn fannst Sigrúnu gaman að hlaupa, hjóla, drekka kaffi, huga að heilsunni, prjóna, lesa, taka ljósmyndir, rækta garðinn sinn og fleira og fleira. Blessuð sé hennar minning. Sigrún verður ógleymanleg þeim sem kynntust þessari dásamlegu konu.