Fyrir stundu var tilkynnt að bókin Skuggasund, ný skáldsaga eftir Arnald Indriðason, hlyti hin kunnu og virtu spænsku RBA Novela Negra-verðlaun, en það eru alþjóðleg glæpasagnaverðlaun sem veitt eru árlega fyrir óútgefna bók.
Valið er úr tugum handrita frá ýmsum löndum sem send eru inn undir dulnefni. Forseti Katalóníu, Artur Mas, afhendir verðlaunin með viðhöfn í kvöld að viðstöddum borgarstjóra Barcelona, Xavier Trias, og fjölda annarra gesta.
Fyrri handhafar verðlaunanna eru m.a. Michael Connelly, Patricia Cornwell, Philip Kerr, Andrea Camillieri, Harlan Coben o.fl.
Skuggasund er sautjánda bók Arnaldar Indriðasonar og er væntanleg samtímis á spænsku og íslensku síðar í haust.
Arnaldur hefur árum saman notið gríðarlegrar hylli lesenda og gagnrýnenda, jafnt hér heima sem erlendis.
Bækur hans hafa verið þýddar á tugi tungumála, selst í milljónum eintaka og aflað höfundinum verðlauna og virðingar víða um lönd.
Meðal verðlauna sem Arnaldi hafa áður hlotnast má nefna norrænu Glerlyklana, sænsku Martin Beck-verðlaunin, breska Gullrýtinginn og frönsku verðlaunin Grand Prix des Lectrices de Elle og Le Prix du Coeur Noir.
Pjattið óskar Arnaldi hjartanlega til hamingju með þessa nýju viðurkenningu.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.