Flestar okkar ættu að þekkja sögu Marilyn Monroe (Norma Jeane Mortenson).
Aðra eins stjörnu er erfitt að finna. Hún lést aðeins 36 ára gömul á heimili sínu í Los Angeles, Kaliforníu. Þrátt fyrir að 53 ár séu liðin frá andláti hennar lifir hún svo sannarlega enn í hjörtum margra okkar og er órjúfanlegur partur af heimssögunni.
Ég datt niður á verulega skemmtilegar og sjaldséðar myndir af þessari mögnuðu og sérstöku konu sem var fædd þann 1. júní í merki tvíburans.
Klára ljóskan sem sigraði heiminn.
Fanney hefur skrifað á Pjattið frá 2012. Hún skrifar mest um andlegu hliðina og lífsstílstengd mál. Fanney er viðskiptafræðingur og starfar sem slíkur hjá Markhóli markþjálfun. Hún býr í 105 Rvk ásamt sambýlismanni sínum Óskari Arnarsyni. Fanney er með sól í fiskum en er rísandi bogmaður.