Gamanleikkonan og snillingurinn Melissa McCarthy er ein af þeim konum sem komust á lista ELLE tímaritsins sem ein af aðalkonunum í Hollywood.
Melissa birtist í blaðinu í víðri kápu en það er óhætt að segja (að mínu mati) að myndin er glæsileg! Ekki eru allir á sama máli og vilja meina að leikkonan sé að fela línur sínar en hún hefur alltaf sagt að hún sé stolt af því að vera með línur og sé ekkert á leiðinni að grenna sig.
Forsvarsmenn ELLE segja að Melissa og stílistarnir hafi verið að skoða allskonar útlit fyrir myndatökuna og þegar hún fór í kápuna þá leið henni einfaldlega vel og fannst hún hrikalega sexý. Myndin sem var síðan tekin af leikkonunni birtist í blaðinu og eru allir alsælir, nema aðdáendur hennar.
Aðdáendurnir segja að hún sé einfaldlega að fela línurnar sínar með þessu dressi og að ýta undir útliststaðla slúðurpressunnar og samfélagsins, hún hefði frekar átt að vera í einhverju sem sýndi línurnar hennar og fagna fegurð sinni.
Hvað sem aðdáendurnir segja þá finnst mér leikkonan glæsileg á myndinni og ég spái voða lítið í kápunni sem hún er í því hún er fjallmyndarleg ásamt því að vera hrikalega fyndin!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig