Melanie Griffith og Antonio Banderas eru að skilja eftir 18 ára hjónaband.
Samkvæmt heimildum er ástæða skilnaðarins óásættanlegur ágreiningur og fer Melanie fram á fullt forræði yfir dóttur þeirra, Stellu.
Melanie var áður gift leikaranum Don Johnson (tvisvar sinnum) og einnig Steve Bauer. Antonio var áður giftur Ana Leza áður en hann giftist Melanie.
Hjónabandið var engu að síður óvanalega langlíft miðað við það sem gengur og gerist í glysborginni.
Mögulega hefur húðflúrið hennar Melanie spilað þar inn í?
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.