Heilsugúrúinn og grænmetisfrömuðurinn mikli hún Solla Eiríks á Gló hefur um áraraðir iðkað þann sið að byrja daginn á því að standa á höfði.
Nú er meistaramánuður og af því tilefni hefur Solla sett sér það markmið að standa á höfðinu á hverjum einasta degi. Þetta er svo skráð og skalfest með aðstoð Instagram þar sem þú getur fylgst með framvindu mála.
Það skemmtilegasta er að Solla finnur endalaust furðulega staði til að standa á höfðinu og þá gildir einu hvort hún er inni, úti eða að sinna erindum í bænum eins og að skreppa á hárgreiðslustofu.
Mögulega flippaðasta amman í bænum? Æði hún Solla ♥
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.