Tímarit: Interview Júní 2010
Fyrirsæta: Megan Fox, fædd 16 maí 1986, leikkona
Ljósmyndari: Craig McDean
Megan Fox skartar hárkollu og pósar með gínu en greinilega er búið að fótosjoppa andlit leikkonunar í andlit gínunnar. Útkoman – dúndurflottar og ögrandi myndir, svolítið eins og hún sé að glíma við sjálfa sig.
Annars er haft eftir Megan í viðtalinu: “If I could just be Angelina Jolie’s girlfriend, I would be so happy.” eða “ef ég gæti orðið kærasta Angelinu jolie, þá yrði ég verulega hamingjusöm.” spurning hvort þessi staðhæfing kæti ekki bara Brad Pitt?
Myndband frá myndatöku Megans Fox má sjá hér: http://www.interviewmagazine.com/media/video/19508
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.