Miroslava Duma er þekkt fyrir að vera hin rússneska “IT” stelpa, svona eins og Paris Hilton í bandaríkjunum, þannig að Miroslava er hin ríka, rússneska, Paris Hilton.
En ólíkt Paris þá er hún með sinn eigin fatastíl, sem er frekar flottur, og langt frá því að vera “trashy” eins og Paris litla er þekkt fyrir.
Svo er hin rússneska “IT” stelpan líka óneitanlega sæt. Miroslava er ófrísk og eins og flestar konur þekkja sem hafa gengið með barn þá er ekki auðvelt að finna fatnað þegar kúlan stækkar.
Ég fann fyrir því á minni meðgöngu og tók til þess ráðs að pakka niður fötunum sem ég komst ekki lengur í svona til að vera ekkert að ergja mig á að “gallabuxurnar” pössuðu ekki lengur. Þetta reyndist bráðsnjallt því þá var aðgengilegra að finna þann fatnað sem ég komst í og ákvað að njóta minnkandi fataskáps og strjúka stækkandi bumbuna með ástúð.
Það eru 3 mánuðir frá því ég eignaðist heilbrigðan og yndislegan son en kjólar, stórar töskur, blazerjakkar, þykkar prjónapeysur, sokkabuxur og -leggingsbuxur urðu fyrir valinu hjá mér á meðan ég gekk með hann.
En hér er stíll Miroslövu á meðgöngunni og hún er bara nokkuð töff ófrísk kona:
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.