Um daginn leyfði hún Díana okkur að gægjast inn á fallegt heimili Max og Lubov Azria og eftir að hafa skoðað nýjafstaðnar tískuviku í NYC þá fannst mér einmitt lína þeirra fyrir vor/sumar 2010 standa upp úr.
Nýja línan hefur mottóið “What a girl wants” og er hönnuð með IT-stelpuna í huga, stelpan sem er trendy og flott og ávallt í nýjustu tísku, það er smá eighties blær yfir kjólunum en aðalatriðið eru sniðin sem eru einstaklega falleg og ná fram því besta fyrir kvenmannsvöxt.
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.