Sætar kartöflur eru guðdómlegar. Svo ljúffengar, girnilegar og hollar.
Fullar af trefjum, próteini, járni, kalki og A og C-vítamíni svo eitthvað sé nefnt. Og ekki skal gert lítið úr fallegum litnum og áhrifum hans á hvert matarborð.
Því eins og við vitum er skemmtilegra að setjast að snæðingi þegar maturinn á diskunum er litríkur og fallega á borð borinn heldur en ef pottunum með einhverri kássunni er slengt á matarborðið.
Ég er einfaldlega heilluð af sætum kartöflum í matargerð og reyndar er líka gaman að nota þær í bakstur og eftirrétti.
Því nota ég hvert tækifæri til að bjóða upp á þær í ýmsum myndum.
- 500 g nauta- eða lambakjötshakk
- 2 stórar sætar kartöflur
- 3 msk. rautt pestó
- 2 msk. tómatkraftur
- 300 g spínat
- rifinn ostur, helst parmesan
- salt og grófmalaður pipar
- rósmarín, ferskt eða þurrkað
- 1-2 tsk. smjör
Sneiðið sætu kartöflurnar helst á lengdina og hafið sneiðarnar um 1 sm þykkar. Skrælið og sjóðið í 8-10 mínútur í léttsöltu vatni. Brúnið hakkið á pönnu, saltið, piprið og kryddið að smekk með rósmaríni (sem gefur yndislegt bragð í þennan rétt.) Blandið tómatmauki og pestói vel saman við hakkið. Hitið spínatið á annarri pönnu í bræddu smjöri í nokkrar mínútur og hellið soðinu síðan af.
Ég er einfaldlega heilluð af sætum kartöflum í matargerð og reyndar er líka gaman að nota þær í bakstur og eftirrétti.
Setjið síðan 1 lag af sætkartöflusneiðum í ofnfast mót, stráið örlitlum osti þar yfir. Dreifið síðan spínati þar ofan á og loks hakkinu. Raðið síðan hráefninu upp þannig koll af kolli, eins og við lasagnagerð, og endið á sætum kartöflum. Stráið smá osti yfir og bakið í 20 mínútur við 200 gráður. Berið fram með grænu salati.
Rósa starfaði um árabil sem blaða- og fréttamaður lengst af hjá fréttastofu Stöðvar tvö og Bylgjunnar. Hún hefur skrifað um mat og matargerð í ýmis blöð og tímarit, þar af í rúman áratug fyrir Gestgjafann. Rósa gaf út sína fyrstu matreiðslubók, Eldað af lífi og sál, haustið 2009. Nú starfar Rósa við ritstörf hjá Bókafélaginu og er bæjarfulltrúi í Hafnarfirði.