Stundum eru einföldustu uppskriftirnar líka þær allra bestu. Hér er ein góð. Pizza með ferskum tómötum og Brie osti. Frábærlega góð og öðruvísi Pizza sem hentar líka vel í partý, kósíkvöld hjá fullorðnum eða lítinn saumaklúbb.
Þú þarft…
- Pizzabotn, annaðhvort heimagerðan eða úr næstu búð
- Ólífu olíu
- Pesto, ef þú vilt
- 2 stóra tómata skorna í sneiðar
- 1/2 rauðlauk, fínskorinn
- 150 gr Brie ostur, skorinn í bita
- Salt og pipar
Og svo…
1. Byrjaðu á að fletja út botninn
2. Skvettu smá ólífuolíu á botninn, eða smyrðu hann lítillega með pestó ef þú kýst að nota það. Dreifðu tómötum yfir, rauðlauk og Brie. Kryddaðu aðeins með salti og pipar.
3. Bakaðu á 220 í 20 mínútur eða þar til botninn er orðinn stökkur og góður.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.