Ég rakst á skemmtilega uppskrift af pítsu vefju – pítsu á netinu, og bíð spennt eftir að prófa hana næstu helgi! Hún er mjög einföld, og lítur vel út!
1
Fyrst þarf að búa til deig og fletja það út. Næst setur þú það sem þú vilt hafa á pítsunni á miðju deigsins.
2
Þar á eftir skerðu degið sitt hvoru megin eins og sést á myndinni hér:
3
Svo er að loka vefjunni og það er gert með því að krossa línurnar yfir, eins og sýnt er hér :
4
Svo er þetta sett í ofn og bakað !! Eftir það lítur vefju – pítsan svona út :