Nú er hægt að kaupa kirsuber í mörgum matvöruverslunum landsins og getur stundum verið erfitt að standast freistinguna að kaupa eina pakkningu eða poka.
Íslendingar eru ekki vanir að geta týnt krisuber af trjánum en hver veit nema það séu nokkur ár í það þar sem landinn gróðursetur kirsuberjatré í garðana sína í tilraunaskyni, en ávaxtatrjárækt nýtur mikilla vinsælda nú á dögum.
Kirsuber eru skemmtileg viðbót í matinn og góð út á hafragrautinn á morgnana, salatið í hádeginu, gott að borða þau fyrir framan sjónvarpið og svo eru þau svo falleg á litinn.
Þar sem Kirsuberið er ávöxtur geta þau hjálpað okkur að stuðla að betri heilsu og má þar nefna að þau geta:
- Sefað vöðva- og liðverki
- Lækkað Kólesteról og komið í veg fyrir hjartasjúkdóma
- Viðhaldið sjón og heilbrigði húðar þar sem þau innihalda mikið af Beta-Karótíni
- Bætt svefn
- Varið okkur gegn krabbameini
Nú er sumar og nú er sól, njótum þess og kaupum okkur kirsuber, þau gera lífið fallegra.
Sigrún Þöll Þorsteinsdóttir (f.15 feb 1975 – d. 8 apríl 2014) bloggaði á Pjatt.is í rúmlega tvö ár.
Sigrún Þöll starfaði sem tölvunarfræðingur, var dellukona, tækjasjúk og fagurkeri af lífi og sál. Að eigin sögn fannst Sigrúnu gaman að hlaupa, hjóla, drekka kaffi, huga að heilsunni, prjóna, lesa, taka ljósmyndir, rækta garðinn sinn og fleira og fleira. Blessuð sé hennar minning. Sigrún verður ógleymanleg þeim sem kynntust þessari dásamlegu konu.