Hvernig væri að hafa hamborgarapartý um næstu helgi? Vantar þig kannski hugmyndir að nýrri útfærslu á hamborgaranum?
Ef svo er þá er Cheese & Burger Society síðan fyrir þig!
Vefurinn inniheldur 30 uppskriftir að hamborgurum sem eru fullkomnaðir með hinum og þessum ostinum og er hver annar girnilegri. Þeir eru einnig með 10 hamborgara til viðbótar þar sem hver borgari er gerður til heiðurs borgum í Bandaríkjunum. Nú er ekki eftir neinu að bíða, bara skella sér í Kjöthöllina og kaupa sér hamborgarakjötið, koma við í matvöruverslun og kannski kippa einum öllara með.
Ég efast um að karlpeningurinn fussi yfir þessum…
Sigrún Þöll Þorsteinsdóttir (f.15 feb 1975 – d. 8 apríl 2014) bloggaði á Pjatt.is í rúmlega tvö ár.
Sigrún Þöll starfaði sem tölvunarfræðingur, var dellukona, tækjasjúk og fagurkeri af lífi og sál. Að eigin sögn fannst Sigrúnu gaman að hlaupa, hjóla, drekka kaffi, huga að heilsunni, prjóna, lesa, taka ljósmyndir, rækta garðinn sinn og fleira og fleira. Blessuð sé hennar minning. Sigrún verður ógleymanleg þeim sem kynntust þessari dásamlegu konu.