Það eru til hundruðir ráða um hvernig eigi að elda kalkún og eru skiptar skoðanir á því hvort eigi að setja smjördrukkið viskustykki ofan á kalkúninn, vefja hann með beikoni, hella yfir hann smjöri eða elda hann í poka.
En heilaga aðferðin sem skilar alltaf töfrum er SMJÖR SMJÖR SMJÖR og meira SMJÖR!
Þú skalt fara út í apótek og biðja um kalkúnasprautu því hluti af galdrinum er að sprauta SMJÖRINU inn í kalkúninn þannig að hann er að springa úr fitu. Flest starfsfólk í apótekum veit hvað átt er við, en kalkúnasprauta er stærsta mögulega nál sem þú getur keypt í apóteki og stærsta mögulega sprauta.
Gott er að taka smjörið, ósaltað (þetta græna), henda í skál, setja inn í örbylgjuofn og sjúga varlega upp í sprautuna þegar það er bráðið. Því næst hefst gleðin og snýst hún um að sprauta kalkúninn út um allt þannig að hann verður uppblásinn og fallegur. Gott er að setja líka smjör undir skinnið, en mikilvægt er að sprauta smjörinu inn í bringurnar og lærin.
Hljómar þetta ekki vel ?
Ef þú ert að pæla í smjörmagninu, þá bara sprautarðu þar til þú getur ekki sprautað meir, en með þessari aðferð (og að setja kalkúninn í pækil) verður hann mjúkur og safaríkur. Svo er gott að ausa líka smjöri yfir hann á 20 mín fresti þann tíma sem hann er inn í ofninum.
Reyndar er mikilvægt að nefna eitt, en það er að taka sinarnar úr lærunum á kalkúninum með því að skera hringinn í kringum enda lærisins, taka upp töng og draaaaaaaaga svo allar sinarnar út, eina í einu. Þetta krefst töluverðar þolinmæði og krafts, en lærin verða bara miklu miklu betri með þessari aðferð.
Ofninn er alltaf stilltur á 150°C og er 40-45 mín á kg + 40 mín fyrir fyllingu.
Eitt svona ráð í viðbót. Settu “hendurnar fyrir aftan bak” á kalkúninum, en þá er auðveldara að taka hann upp úr steikarpottinum og hann er stöðugri á borðinu.
Verði ykkur að góðu!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.