Marilyn Manson verður seint sagður mjög myndarlegur maður en þrátt fyrir það hefur hann eitthvað sem margar af heitustu konum Hollywood sjá við hann.
Persónulega finnst mér hann ekki “heitur gæji” en mér fannst t.d. Marilyn og Evan Rachel Wood alveg afskaplega flott par og ekki voru hann og Dita Von Teese verri.
Það er einhver sjarmi yfir þessum manni – kannski er hann bara svona góðhjartaður? Á maður að hætta að vera svona yfirborðskenndur? Tjaaa ég veit ekki?
Nýjasta viðbót hans í kvennasafnið er Americas Next top model sigurvegarinn Caridee English og hún segir um hann:
“Hann lætur mér líða vel bæði með sjálfan mig og um mig sem listamann og honum lætur mér líða eins og ég sé falleg” – Já kannski er það nóg?!
Hvað finnst ykkur um Marilyn ? Á hann allar þessar fallegu konur skilið?
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.