Söngkonan og dívan Mariah Carey er alls ekki feimin við það að deila myndum af sér og sinni fjölskyldu á veraldarvefnum, hún var í kósý fíling á Valentínusardag og birti myndir af sér í baði.
Mariah var í freyðibaði þegar að hundurinn hennar ákvað að skella sér í baðið með henni og að sjálfsögðu var myndavélin á lofti og myndirnar birtar á Twitter síðunni hennar.
Ástin var svo sannarlega í loftinu hjá þeim hjónum og þau áttu huggulegt kvöld saman, fóru í hestvagnsferð og út að borða en Valentínusardagurinn er mjög vinsæll í Bandaríkjunum og flestir reyna að redda sér stefnumóti á þessum degi til þess að verða ekki útundan.
Hjónin voru dressuð upp á tíu og leyfðu aðdáendum sínum að skoða myndir af sér á stefnumótinu þeirra á Twitter, of mikið af því góða?
Dæmi nú hver fyrir sig… enn og aftur.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig