Hin íðilfagra Margot Robbie sló heldur betur í gegn í “Wolf of Wall Street” en í viðtali við ELLE talar hún um áheyrnaprufuna.
Margot sagðist hafa verið svo stressuð þegar hún hitti Leonardo í áheyrnarprufunni. Hún hafði ekki hugmynd um hvað hún átti að gera til að vekja athygli á sér og þegar það var um hálf mínúta eftir af prufunni hugsaði hún með sjálfri sér að núna væri að duga eða drepast!
Það var þá sem hún ákvað að nota öll blótsyrði í bókinni ásamt því að hækka róminn verulega og til að toppa allt ákvað hún að slá Leonardo Dicaprio sjálfan utanundir í staðin fyrir að kyssa hann! OG eftir að hún gaf honum einn á kjammann var hún handviss að núna yrði hún handtekin.
Margot var að sjálfsögðu ekki handtekin og hreppti hlutverkið en það er ansi mikið um nektarsenur í myndinni… svo margar eru þær að Margot bannar ömmu sinni og afa að sjá myndina. Sniðug stelpa. Hver vill hafa ömmu og afa að horfa á svona?
Margot segir að það sé mikilvægt að nýta þau tækifæri sem bjóðast og hlakkar til framtíðarinnar sem leikkona en hún mun eflaust hafa mikið að gera á næstunni og það verður gaman að fylgjast með.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig