Öskudagur er einn skemmtilegasti dagur ársins, að minnsta kosti að mati yngri landsmanna en snemma í gærmorgun hófu börn að leggja leið sína í sælgætisgerð Nóa Síríus til hefja upp raust sína í skiptum fyrir góðgæti.
Nói Síríus hefur lengi verið vinsæll áfangastaður barna á öskudag og myndaðist myndarleg röð fyrir utan lager fyrirtækisins þar sem namminu var útbýtt. Öll börnin fá jafnframt happdrættismiða þar sem vinningar eru páskaegg.
Í fyrra voru börnin sem mættu í Nóa hátt í fjögur þúsund talsins en flestir grunnskólar á suðvesturhorninu gefa börnum frí frá hádegi, þegar skemmtunum í skólunum sjálfum er lokið svo þá var hægt að nota daginn í að moka inn gotteríi.
Íþróttaálfar, nornir, sjóræningjar, pardusar og poppstjörnur voru á meðal þeirra sem sungu fyrir starfsmenn Nóa sem fengu að heyra allt frá íslenskum vísum og dægurlögum til erlendra popplaga. Margir sungu Júróvisjonlagið Enga Fordóma með Pollapönki og krakkarnir létu snjóinn ekkert á sig fá á þessum mikla uppskerudegi.
Það er ekki að undra að þessi dagur sé með þeim líflegri á hverju ári hjá fyrirtækinu og er hann enda vandlega undirbúinn – u.þ.b. eitt tonn af sælgæti tekið sérstaklega frá fyrir þennan dag og þarf því enginn að óttast að fá ekki smá góðgæti í pokann sinn.
Allir starfsmenn Nóa klæddu sig upp í búninga í dag, hefðinni samkvæmt, og fór fram keppni á milli starfsmanna og deilda um besta grímubúninginn. Þessar nunnur voru til dæmis ansi vígalegar.
„Við bíðum alltaf spennt eftir þessum degi enda með skemmtilegri dögum ársins að okkar mati. Það er gaman að fylgjast með gleðinni og spennunni hjá börnunum, sjá alla ólíku búningana og hlusta á lögin sem margir hafa greinilega æft af kappi,“ segir Auðjón Guðmundsson, hjá Nóa Síríus.
Frábær stemmning í þessu musteri íslenskra nammigrísa! Spurning hvort við skellum okkur í röðina með krökkunum á næsta ári?
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.