Mánudags mantran þessa vikuna er einstaklega einföld. Hvað svo sem þú heldur þá hefurðu alltaf rétt fyrir þér.
,,Hvort sem þú heldur að þú getir það eða getir það ekki, þá hefur þú rétt fyrir þér.” -Henry Ford
Þjálfaðu hugann í að hugsa jákvætt. Þegar þú stendur sjálfa þig að því að hugsa að þú getir ekki eitthvað, taktu þér þá augnablik og snúðu þeim hugsunum við. Ef þú vilt það, þá geturðu það.
Erna er vatnsberi sem má ekkert illt sjá. Hún býr í stórborginni Bogotá í Kólumbíu ásamt manni sínum og syni. Erna er stúdent í tungumálum og samtímadansi, er yogakennari hjá Yoga Alliance en hún er jafnframt útlærður ferðamálafræðingur frá Ferðamálaskólanum í Kópavogi. Erna talar fimm tungumál og þrjú af þeim daglega. Hennar helstu áhugamál eru ferðalög, fjölskylda, hugur og heilsa.