Mánudags mantran þessa vikuna er í boði drottningarinnar Opruh Winfrey. Hún hefur lengi vel haft mikinn áhuga á andlegum málefnum og hvernig má lifa innihaldsríku lífi.
Oprah veit svo sannarlega hvað hún syngur og hvernig á að ná langt í lífinu og vera hamingjusöm. Það er því ómetanlegt að fá góð ráð frá þessari fallegu og einlægu konu.
Þú færð það í lífinu sem þú hefur kjark til að biðja um.
Ekki vera hrædd við að biðja um allt það sem þú vilt í lífinu. Því þú átt það allt saman skilið og miklu meira til.
Namaste
Erna er vatnsberi sem má ekkert illt sjá. Hún býr í stórborginni Bogotá í Kólumbíu ásamt manni sínum og syni. Erna er stúdent í tungumálum og samtímadansi, er yogakennari hjá Yoga Alliance en hún er jafnframt útlærður ferðamálafræðingur frá Ferðamálaskólanum í Kópavogi. Erna talar fimm tungumál og þrjú af þeim daglega. Hennar helstu áhugamál eru ferðalög, fjölskylda, hugur og heilsa.