Í dag og á morgun ætlar Sóley Ástudóttir, betur þekkt sem Sóley Make up artist, að vera með bás í Kolaportinu þar sem hún ætlar meðal annars að selja lager af þrælgóðum snyrtivörum sem heita Make up A og hún Hafdís hefur skrifað um hér á blogginu.
Hafdís mælir sérstaklega með stifts-meiki frá þeim en hún skrifaði um það í þessari færslu þegar við áttum enn heima á blogspot. Meðal þess sem Sóley er að selja í dag eru mjög góðir augnskuggar á 300 kr og förðunarpenslar á 500 kr.
So… ef þig vantar eitthvað og átt ekki masser av penge þá er Kolaportsbásinn hennar Sóleyjar kannski málið fyrir þig í dag?
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.