Vinkonur mínar eru flestar búnar að vera á innsoginu undanfarið vegna greinar sem birtist í nýjasta eintakinu af Man-Magasín.
Í greininni skrifar Ragga Haralds og Eiríksdóttir, “kynlífshjúkka”, um konur sem hún kallar ‘saflátur’ og í þessu samhengi tekur hún viðtal við mann í Kópavogi sem lætur ekki nafns síns getið.
Í viðtalinu segir maðurinn frá því hvernig hann kann að láta konur fá fullnægingu með g-bletts nuddi. Að eigin sögn gefur þetta athæfi honum mikla gleði og ánægju og hann reynir hvað hann getur að veita sem flestum konum þessa sælu þar sem hann veit fátt betra fyrir sjálfan sig.
Ástæðan fyrir þessu ‘gjafmildi’ er nefninlega sú að fráskildi maðurinn í Kópavogi er ekkert sérstaklega mikið fyrir nánd eða að gefa af sér. Með því að fullnægja konum kynferðislega fær hann útrás fyrir eigin kynhvatir. Honum finnst nefninlega svo gott að gefa af sér kynferðislega. Hann hefur þó engan áhuga á að taka þetta lengra. Ef kona verður skotin í honum þá reynir hann að klippa á samskiptin er samt sannfærður um að dag einn muni hann verða ástfanginn.
Það er margt sérstakt við þetta viðtal en þá sérstaklega finnst mér viðbrögðin við því áhugaverð.
Margar konur virðast nefninlega frekar heillaðar af því sem herra Kópavogs Keli, G-bletts nuddarinn mikli er að gera. Dæma hann ekki, hugsa jafnvel með sér að það gæti verið gaman að hitta karlinn.
Einmana kona sem elskar að nudda blöðruhálskirtla (í fleirtölu)
Ég hugsaði strax hvernig viðbrögðin við þessu viðtali yrðu ef það væri kona sem í hlut ætti. Kona í Kópavogi sem er lítið fyrir nánd en finnst gaman að fullnægja körlum kynferðislega með því að nudda á þeim blöðruhálskirtilinn.
Fráskilin móðir sem væri ekki á leiðinni í samband en gerði þetta með allskonar körlum sem hún pikkaði upp í gegnum vini, Einkamál og Facebook til að fá útrás fyrir eigin hvatir og þörf fyrir samveru. Ætli það kæmi ekki annað hljóð í strokkinn? Ég veit það ekki, en svei mér þá ég held það.
Næst hugsaði ég að þarna væri greinilega kynlífsfíkill á ferð. Fíkill sem er búinn að setja saman svona líka fína réttlætingu fyrir sjálfan sig; Í eigin huga er hann ekki lauslátur og tilfinningalega einangraður kynlífsfíkill sem hefði gott af að heimsækja geðlækni eða sálfræðing. Nei, hann er hinn frelsandi engill fullnægingarinnar, fæddur í þennan heim svo að konur landsins geti fengið það betur, meira og lengur. Góður maður og gefandi.
Stærsta umhugsunarefnið er þó kannski hvort íslenskir karlmenn séu að standa sig allt of illa sem elskendur ef konur roðna í vöngum og eru strax til í að hitta Kópavogs Kela jafnvel þó hann vilji ekkert annað með þær hafa en að nudda á þeim G-blettinn?
Ég birti grein hér á Pjatt.is í vikunni þar sem sagt var frá því að lessuklám væri það vinsælasta hjá gagnkynhneigðum konum af því þar er raunverulega verið að gera eitthvað fyrir konurnar. Í lessuklámi eru konur og þeirra fullnæging í aðal hlutverki og þar er heldur ekki sama niðurlægingarefnið og virðist vera í tísku í klámefni karla í dag. Þetta segir okkur að kannski er eitthvað að pínulítið bogið við hefðbundið kynlíf gagnkynheigðra. Hvað veit ég? Eru strákarnir svona eigingjarnir? Verðum við þá ekki að krefjast réttar okkar?
Ætli við þurfum ekki hreinlega að hafa Boot Camp í rúminu? Byrja á að lesa ÞETTA upphátt fyrir ástmanninn, eiginmanninn, sambýlismanninn og neita að gera meira fyrr en hann hefur náð sömu tökum á tækninni og Kópavogs Keli. Eitt er víst að allir geta lært þetta.
Og annað er á hreinu að góðar, giftar eða ógiftar konur með heilbrigða sjálfsvirðingu ættu ekki að þurfa að álpast upp í Kópavog til þess að fá’ða með lauslátum manni sem þær vita lítið sem ekkert um og klippir á samskipti ef þær voga sér að verða skotnar. Það lengsta sem við ættum að fara er upp í eigið ból og þá sér í lagi ef við deilum því á hverri nóttu með öðrum einstaklingi.
Þetta kallar á byltingu. G-leðibyltingu sem má hefjast strax í kvöld!
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.