Madonna var flott eins og vanalega þegar hún mætti til að kíkja á það nýjasta frá Marc Jacobs.
Madonna, sem er 51 árs, var klædd í gegnsætt blúndupils og lærastígvél úr hanskaleðri en líklegast var kærastinn hennar, hinn 23 ára gamli Jesus Cruz, flottasti fylgihluturinn þetta kvöldið.
Súperstjörnurnar Lady GaGa og Madonna voru heiðursgestir. Lady GaGa mætti með grímu og furðulega hárkollu á höfðinu og Madonna leit út eins og góð MR stúlka við hlið hennar.
Marc Jacobs tekur algera u-beygju í hönnunn sinni fyrir 2011 en næsta mál á dagskrá virðast vera undirfötin utanyfir og ógó mikið af blúndum.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.