Madonna kom við á tökustað miu miu til að hitta vini sína ljósmyndarana Mert Atlas og Marcus Pigott í mat. Hún var í góðum gír og datt allt í einu í hug að leikstýra fyrir auglýsingu miu miu en vinir hennar voru að vinna við auglýsingatökur fyrir haust og vetrarlínuna.
Þeir sögðu Madonnu hún mætti leikstýra, þeir gætu hinsvegar ekki greitt henni fyrir verkið. Madonna hló víst bara til, skellti ipodnum sínum i græjurnar og kenndi stelpunum nokkrar pósur og spor “a la madonna”.
Fyrirsæturnar Lindsey Wixson, Ginta Lapina, Daphne Groeneveld og Siri Tollerod skemmtu sér vel og urðu sannarlega stjörnurnar í herferð miu miu þetta haustið.
Þetta lag með Boy George var eitt af lögunum sem madonna var með á ipodinum:
Viltu lesa meira um madonnu og miu miu? -Hér er fansíða Madonnu.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.