Ofurkvendin þær Madonna og Kate Moss tóku á því saman í gærkvöldi þegar sú fyrrnefnda fagnaði afmælinu sínu en að hætti ljóna slær hún yfirleitt ekki slöku við þegar hún á afmæli.
Madonna er orðin 56 ára en Kate er fertug. Þema veislunnar var Great Gatzby tímabilið en veislan fór fram í prívat villu í Cannes, Frakklandi og hefur undirbúningurinn staðið í marga daga.
Vinkonurnar og aðrir partýgestir hafa greinilega lagt svolítið í kynþokkann því báðar eru í stuttum kjólum og sexý sokkabuxum við dressin.
Við myndina skrifar hún: “Bow down Bitches! #whatitfeelslikeforagirl.”
Á annari mynd má sjá glaða partýgesti sperra sig en þar skrifar drottningin: House of M, House of Fun! La Vie en Rose! #unapologeticbirthdaybitch.”
Þetta síðastnefnda hashtag um dömuna sem er ekkert að afsaka sig “#unapologeticbitch” er greinilega málið hjá henni núna því fyrir tveimur vikum birtir hún þessa mynd af nokkrum kornungum mönnum og skrifar “Svona lítur fríið mitt út…
Madonna alltaf hress! Það slær henni engin við…
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.