Madonna er víst þekkt fyrir hrikalegan sjálfsaga í mataræði sem öðru.
Hún bannar allt hveiti, mjólkurvörur og sykur á sínu heimili en fyrir vini sína Dolce og Gabbana er hún til í að borða svolítið pasta og vaska jafnvel upp eftir matinn.
Lúkkið á Madonnu á þessum myndum þykir mér einstaklega flott. Hárið, dökkar augabrúnirnar og fötin. Skemmtilega rómantískt, pínu 90’s og meiriháttar þokkafullt. Hún bregst manni aldrei þessi frábæra kona sem virðist listamaður í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur, hvort sem er ástarlífið, útlitið, uppeldið, uppvaskið… eða vinnan.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.