Madonna er maður orða sinna en hún sagðist ætla að gefa 8 ára syni sínum gulltennur í afmælisgjöf og stóð við það. David Banda var brosandi kátur á Instagram hjá mömmu sinni í gær.
Mamma hans skrifaði ‘Someone stole my Grilzzzzzzz!!!’ við myndina en sjálf hefur hún gengið um með gullgrill í töluverðan tíma og segist gera það aðallega til að fara í taugarnar á fólki. Þetta veki alltaf svo óskaplega mikil viðbrögð.
Hún segir David hafa langað í sitt eigið grill frá því hún fór að vera með sitt síðasta sumar en þetta kom fram í sjónvarpsþættinum E Online. Þá mættu mæðginin á Grammy hátíðina í eins fötum, ótrúlega smart mæðgin.
However David chose funky black and white brogues to finish off his look while Madonna’s walking stick, silver gloves and ever present grill, helped her look slightly different. Hann var með skrautlega nælu í sínum jakka en hún var með silfurhanska, gulltennur og silfraðan kross um hálsinn til að halda slipsinu niðri.
Í viðtali við Ryan Seacrest á rauða dreglinum sagði David spenntur frá því að mamma hans ætlaði að gefa honum gullgrill í átta ára afmælisgjöf. Þá svaraði hún “Já, við höfum bara ekki haft tímann. Þú þarft að fara til tannsa og láta taka mót.”
Ætli þetta trend nái Íslandsströndum? Varla.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.