Söngkonan Madonna virðist alltaf vera að reyna að vera með puttann á púlsinum til að vera hipp og kúl en tilraunir hennar til að draga að sér athygli eru farnar að vera ansi aumkunarverðar.
Madonna var stödd í Róm til að skoða líkamsræktarstöðina sína “Hard Candy” og mætti með svaka gull grill í tönnunum. Hún virtist ekkert feimin að sýna skrautið í munninum þrátt fyrir að líta hálf fáránlega út, tennurnar virtust gular og jafnvel svartar þegar hún brosti.
Söngkonan var að sjálfsögðu með hanskana sína til að æðarnar á höndunum myndu ekki sjást, í stuttum svörtum kjól með blúndum, svörtum sokkabuxum og silfurlituðum hælaskóm og gerði ekkert annað en að brosa til þess að blingið hennar í munninum myndi nú örugglega sjást.
Við vitum allar að Madonna fer sínar eigin leiðir en þetta lúkk er einfaldlega ekki að fara söngkonunni vel og virðist meira eins örvæntingarfull tilraun til að fá athygli. Eða hvað? Er hún á undan og við á eftir?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig