Poppgyðjan Madonna var ansi hreinskilin við aðdáendur sína þar sem hún sat fyrir svörum á Reddit.com á mánudaginn.
Þar er hún meðal annars spurð að því hvað hafi síðast fengið hana til að hlægja og hún svarar að það hafi verið heldur dónalegur draumur um sjálfan Brad Pitt. Henni fannst bráðfyndið að sig skyldi vera að dreyma þann kappa en í draumnum áttu þau meðal annars ljóshærð börn saman.
Svo bætti hún við: “Fyrirgefðu Angelina en þetta var bara draumur.”
Í spurningahrynunni svaraði hún líka að skemmtilegasta afmælisgjöf sem hún hafi fengið hafi verið hassreykingatæki (bong) sem var í laginu eins og karlmannslimur. Þegar hún var spurð áfram út í þetta lagði einn aðdáandinn til að nú væri apparatið notað sem bókastoð.
Hún talaði líka um uppeldismál við aðdáendur og sagði þá meðal annars að hún myndi ekki leyfa syni sínum Rocco að hefja poppferil fyrr en hann væri búinn að ljúka námi. Hann er sjálfur æstur í að gefa út plötu en mamma gamla vill að hann klári áttunda bekkinn fyrst.
Madonna vildi hinsvegar ekkert ræða Lady Gaga sem margir líta á sem helsta samkeppnisaðila dívunnar en HÉR getur þú skoðað meira af þessu spjalli.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.