Poppdrottningin sjálf Madonna er mætt á Instagram og hún vígði síðuna sína með pompi og tja prakt nýlega.
Madonna er þekkt fyrir það að vilja hafa allt fullkomið þegar það kemur að útlitinu, hún hefur meira að segja gengið svo langt að vera með grifflur á opinberum samkomum til þess að það sjáist ekki hversu “gamlar” hendurnar hennar virka en hún er mjög æðaber á höndunum.
Madonna lét hinsvegar mynd af sjálfri sér, frekar rauðeygðri, sötrandi Martini vera sína fyrstu mynd á Instagram og það er óhætt að segja að þessi mynd er ekki sú besta sem hefur náðst af Donnunni en hey… gott hjá henni að fagna sínu náttúrulega útliti án photoshop og lagfæringa.
Seinni myndin var ekki síður skrautleg en þar sýndi Madonna svitann leka af sér og búbburnar og blaut haka voru einnig með á myndinni. Dæmi nú hver fyrir sig.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig