Madonna heldur áfram að trylla lýðinn á Instagram síðunni sinni með mis skemmtilegum myndum af sjálfri sér.
Donnan er alltaf í stuði virðist vera, hefur ótrúlegan húmor fyrir sjálfri sér og lætur nánast hvað sem er flakka á veraldarvefinn. Margir vilja meina að hún sé alltaf að reyna að halda í við ungu dömurnar í Hollywood en í glysborginni er flottast að vera grannur, sætur og já alls ekki leiðinlegur!
Nýjustu myndirnar frá Madonnu eru teknar á tónleikaferð hennar MDNA. Önnur myndin er tekin af einhverjum öðrum en henni sjálfri og afturendi söngkonunnar er mjög áberandi á meðan hin myndin er töluvert ólík þeirri fyrri en þar er Madonna kappklædd og bregður á leik með húfuna sína.
Þú finnur Madonnu á Instagram undir nafninu Madonna.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig