Í dag byrjar geggjuð útsala á MAC vörum í Debenhams, allskonar flott dót í boði og því kannski tilvalið að kaupa jólagjafirnar handa vinkonum og mömmum.
Þar má m.a. finna Limited línurnar Dame Edna og jólalínuna frá í fyrra sem er ótrúlega flott, fjólubláir og rauðir tónar í gylltum og silfruðum antík-pakkningum, og svo allskonar litaðir, augnskuggar, kinnalitir, gloss og varalitir. Í dag er 30% afsláttur af MAC tilboðsvöru og svo 15% aukaafsláttur því það er megadagur í Debenhams og það þýðir 15% afsláttur á allri snyrtivöru og 25% afsláttur af allri annarri vöru.
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.