![](https://i0.wp.com/pjatt.is/wp-content/uploads/2014/03/6f5f75a4f66a2db042ee66402d36d036.jpg?resize=406%2C655)
Óskarsverðlaunahafinn Lupita Nyong kann svo sannarlega að klæða sig.
Það er algjölega frábært hversu óhrædd hún er að klæðast sterkum litum og flíkurnar sem hún velur sér eru undantekningarlaust fallegar í sniðum.
Mér finnst alltaf gaman að sjá þegar konur hafa fágaðan og kvenlegan stíl en ná samt að vera frumlegar og stundum töff.
Lupita er klárlega í fararbroddi best klæddu kvenna Hollywood í dag. Hún hefði reyndar betur mátt sleppa hárspönginni á Óskarnum en annars stígur hún varla hliðarspor hvað varðar klæðaval og stíl.
Takk Lupita fyrir að vera framúrskarandi fáguð og flott!
![](https://i0.wp.com/pjatt.is/wp-content/uploads/2020/06/inniskór.jpg?resize=100%2C100&ssl=1)
Fanney hefur skrifað á Pjattið frá 2012. Hún skrifar mest um andlegu hliðina og lífsstílstengd mál. Fanney er viðskiptafræðingur og starfar sem slíkur hjá Markhóli markþjálfun. Hún býr í 105 Rvk ásamt sambýlismanni sínum Óskari Arnarsyni. Fanney er með sól í fiskum en er rísandi bogmaður.