Hún er einn heppnasti unglingur heims og getur fengið lánuð föt úr skápnum hjá Madonnu, enda er Lourdes dóttir poppdívunnar miklu.
Eflaust er litla Lourdes heimsins svalasti táningur en hún er orðin 13 ára og komin með sína eigin fatalínu sem heitir Material Girl.
Og svo bloggar Lourdes líka og bloggið hennar er bara nokkuð gott! Getið skoðað það hér!
Hennar fyrsta innleg er ansi sætt en þar skrifar hún hvað henni hlakkar til að verða 14 ára því þá má hún fara að lita hárið.
Frekar krúttlegt. Það veður gaman að fylgjast með Lourdes í framtíðinni.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.