Marc Jacobs segir að Louis Vuitton hafi valið þrjár af fallegustu konum heims, þær Nataliu Vodianova, Karen Elson og Christy Turlington fyrir auglýsingaherferðina í ár…
Í raun dugði ekkert annað til en ein ljóshærð, ein rauðhærð og ein dökkhærð.
Steven Meisel ljósmyndaði dömurnar á ljósmyndastofu í New York og var bakgrunninum líkt eftir snyrtiherbergi Hollywoodstjarna fyrri tíma. Klæðnaðurinn er ótrúlega fallegur, mjög kvenlegur í 50’s stíl, stelpurnar eru guðdómlega flottar, sætar og sexý. Ég elska skóna, töskurnar og kjólana.
Tók reyndar eftir að á einni myndinni í herbergismyndatökunni leggur Natalia hönd á bringu en spegilmyndin fylgir ekki eftir..?
“There’s this huge cult following of almost crazy people at Vuitton who just want whatever they buy to be exclusive.”
~ Marc Jacobs
Tískusýninguna má sjá hér:
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.