Thighbrow eða lærabrún er nýyrði yfir hluta kvenmannslíkamans, nánar tiltekið lærið, eða fellingarnar sem myndast þegar kona situr.
Þá semsagt gúlpast lærið svona aðeins til og þetta hefur nú fengið nafn. Á ensku. Thighbrow. Ef þú ferð á Instagram og slærð inn myllumerkið #thighbrow koma allskonar myndir í ljós en það er sannarlega enginn skortur á fólki sem fílar athygli á þessum skemmtilega samfélagsmiðli. Stúlkan í Godfather bolnum á myndinni hér að ofan skilgreinir lærabrún með þessum orðum:
That line. That line at the top of leg. That line is a thighbrow. Welcome to the world of thighbrows, a world which once you enter you may never leave, a world where lines on legs are a thing. A thing called a thighbrow.
Hér eru nokkur sæmileg dæmi um lærabrúnir af Instagram, spurningin er bara… hvernig er hið fullkomna thighbrow? Hver er með það? Er hægt að vinna með lærabrúnina sína? Græðir maður á því að vera með flotta lærabrún?
Nú þegar rassa-selfies eru orðnar að normi þá verður að sjálfssögðu að koma með eitthvað nýtt! Eða eins og afi sagði – LOL
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.