Það hafa sennilega ekki allir jafn mikinn metnað fyrir því að útbúa líflegt fjölskyldualbúm eins og hinn 44 ára gamli svisslendingur, John Wilhelm.
John segir dætur sínar þrjár og eiginkonu hafa gaman af því að stilla sér upp og koma sér í hina ýmsu karaktera fyrir myndatökur. Hann eyðir í það minnsta fimm klukkutímum í hverja mynd svo klukkutímarnir sem hafa farið í myndvinnslu skipta hundruðum.
Þetta er maðurinn á bak við linsuna.
Sjón er sögu ríkari…
Þetta kallar maður sko metnað! Fleiri frábærar myndir hér að neðan…
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com