Ég skríkti af kæti þegar ég rakst á þessar frábæru myndir á netinu en hér má sjá nokkra húmoríska pilta gera góðlátlegt grín að því þegar stelpur birta “selfie” á Instagram, allt frá pósum yfir í #hasstögg.
Mikið hefur verið skrifað um þessa “selfie” menningu á netinu og sumir sálfræðingar hafa af þessu áhyggjur en förum ekki út í þá sálma hér. Það er bara stundum svo fyndið að sjá stráka hegða sér eins og stelpur — og öfugt. Það var vinkona þessara pilta, bloggarinn Ashley Hesseltine, sem bað þá um að stilla sér upp eins og við erum vön að sjá stelpur gera en útkoman finnst mér mjög fyndin. Hér eru nokkrar af bestu myndunum…
1. “Kósý með kaffið mitt”
Hvað höfum við ekki séð fáránlega margar svona myndir á samskiptamiðlunum? Kaffi, tímarit… ohhh, kósýýýý. Sjáðu líka það sem hann skrifar undir myndina: #lovinglife #hipster #Zarascarf…. 😀
2. Með kaffi í rúminu, “tekið ofan frá”
Af því maður er sirka daglega með kaffi og bílablöð uppi í rúmi. Eða ekki?
3. Vinkill: Pulsuleggir
Þessi vinkill er mjög vinsæll. Sérstaklega ef þú ert í sólbaði eða í Victorias Secret náttbuxum. #lovinglife
4. Vinkill: Marylin Monroe tilvitunin
Hefur þú póstað eða lækað þessa tilvitnun? Einu sinni? Oftar? Aha 😀
5. Vinkill: Tískubloggarinn
6. Vinkill: Með bollaköku
Þessi tekur alveg tvöfaldan á þetta. BÆÐI bollakaka OG ís. #omnom #foodporn
7. Vinkill: Kósý með hundinn eða kisuna.
Oh… hér er ég að hafa það krúttað með gæludýrinu mínu. Hvaða gæludýraeigandi kannast ekki við svona myndatöku af sjálfri sér? Ái. Hahaha…
8. Vinkill: “outfit of the day (OOTD) selfie”.
Okkar maður með rosalegar skýringar á því af hverju hann er í þessum fötum, af hverju þau fara saman. #OOTD
9. Vinkill: Árangur í ræktinni
Og með smá stút… og hönd á mjöðm #legday
10. Vinkill: Ég borða hollt og geri mér grænan smoothie daglega
11. Vinkill: BFF á afmæli í dag…
Ooooog við erum svo ógeðslega góðir viinirrr… þessvegna ákvað ég að setja saman svona myndasyrpu af þér.
12. Vinkill: “Skinny arm pose” og/eða ma gurhls…
Ái… þessar myndir eru jafn vandræðalegar og heil sería af The Office..
Þú getur elt þessa snillinga hér á Instagram og hér er bloggið hennar Ahsley. Mér finnst þetta hrikalega fyndið. Meira svona!
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.