Ljótustu plötuumslög í heimi, – eitt skemmtilegasta myndasafn sem sést hefur á netinu og varla til sá vefmiðill sem ekki hefur birt þessi umslög á einum eða öðrum tímapunkti.
Olíuborinn maður, kviknakin í hvítum strigaskóm með st******nu úti á miðri götu, allt of glaður maður sitjandi klofvega á albínóarottu, þýskur maður með aflitað hár og útstæð augu á plötunni “Elsku mamma”, kona ber að ofan með kött í kjöltunni á plötunni “My pussy belongs to daddy”… maður með blásturshljóðfæri í rassinum á konu og svo mætti lengi telja.
Myndirnar eru algjörlega fáránlegar, listinn er ógleymanlegur og sannir netverjar hafa séð þetta einu sinni eða oftar. En hvernig skyldi nú tónlistin á þessum plötum hljóma?
Jú, stórkostlega furðuleg! Óborganleg á köflum. Einhver snillingurinn þarna úti gerðist svo góður að safna þessu saman í lauflétta syrpu. Hér er árangurinn. Það má halda fyrir eyrun – og hraðspóla 😉
[youtube]https://www.youtube.com/watch?v=-jaHEa5omWE#t=185[/youtube]
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.